Vörur
NMEA SæHundur
Öflug iðntölvar fyrir skip og báta
DIN4U FjölGarpur
NetGarpur
Upplýsingar
Tengiliðir
Tungumál
English

NMEA SæHundur

Stýring tækja í skipum út frá upplýsingum siglingatækja.

NMEA SæHundur er ætlaður fyrir bátasmiði sem leið til þess að verja sjálfkrafa búnað um borð í bátum og minnka þannig líkur á óhöppum og skemmdum sem geta leitt til ábyrgðarviðgerða. Tækið er sérhannað fyrir skip og báta, einangrað frá rafkerfi skipsins.

Tækið les og ræður í NMEA upplýsingar frá siglingatækjum á borð við GPS og dýptarmæla. Tækið má stilla á til að greina og bregðast við hvaða NMEA streng sem slík tæki gefa frá sér. Viðbrögð tækisins felast í að stjórna öðrum tækjum og búnaði með segulliðum, eða senda út nýjan NMEA streng með upplýsingum frá skynjurum.

NMEA SæHundur getur skynjað stöðu tækja og búnaðar um borð og sent frá sér upplýsingar þar að lútandi, óumbeðið á NMEA formi. Tækið getur einnig túlkað og breytt NMEA strengjum.

Dæmigerð notkun tækisins er :

  • Sjálfvirkur útsláttur/innsláttur bógskrúfu miðað við hraða
  • Sjálfvirkur útsláttur/innsláttur auka stýrisdæla miðað við hraða
  • Upphal fellikjöls miðað við hraða og dýpi.

SæHundur les og vinnur úr upplýsingum frá siglingartækjum til þess að tryggja örugga stöðu búnaðar sem getur annars orðið fyrir skemmdum ef honum er beitt við vissar aðstæður. SæHundinn má einnig nota til ýmissa annarra stýringa og vöktunar um borð.

Eiginleikar vélbúnaðar :

  • Einangraður spennugjafi (galvanized) til notkunar í skipum
  • Allt að sex innbyggðum segulliðum til stýringar á sterkstraumstækjum
  • Átta stýringar, skilgreinanlegar sem skynjarar eða stýringar, tvístöðu (binary) eða stiglaust (analog)
  • Hægt að bæta við allt að 64 segulliðum eða skynjurum/stýringum 
  • Þaulprófaður vélbúnaður við erfiðustu aðstæður
  • Al-Íslensk hönnun og framleiðsla 

Eiginleikar hugbúnaðar :

  • Stillanleg viðbrögð við gildum hvers kyns NMEA strengs frá siglingatækjum
  • Stillanleg viðbrögð við breytingu á stöðu skynjara, tvístöðu eða stiglausum
  • Forritanleg vörpun gilda NMEA strengja
  • Forritanleg túlkun NMEA strengja
  • Forritanleg útsending NMEA strengja útfrá skynjaðri stöðu og gögnum frá tækjum

Tækið er þegar notað til .. :

  • .. stjórnunar bógskrúfu út frá hraða skips,
  • .. stjórnunar fellikjöls út frá hraða skips og dýptarmæli,
  • .. stjórnunar auka-stýrisdæla út frá hraða skips,
  • .. úsendingar NMEA upplýsinga út frá gögnum frá botngreiningartækjum,
  • .. NMEA síunar,
  • .. NMEA túlkunar .

Forrit til uppsetningar fylgir :

Copyright © True Electronics
Managed with TagBang!