NetGarpur
Stöðuskynjun og stýring tækja gegnum TCP/IP nettengingar.
Skynjar stöðu tækja og umhverfisþátta svo sem hita og þess háttar. Getur kveikt og slökkt á tækjabúnaði samkvæmt beinum skipunum, skynjun stöðu eða tímaáætlunum.
Getur tilkynnt stöðu samkvæmt tímaáætlunum eða við breytingu skynjara með póstsendingum eða beintengingu við þjóna. Stöðu má einnig lesa úr tækinu gegnum nettengingu og birta á vefsíðum.
Dæmigerð notkun tækissins er eftirlit og stýring á búnaði i tölvusölum, s.s. aðvaranir varðandi hitastig og endurræsing búnaðar.
Vélbúnaður :
- Tveir segulliðar til að stýra lágspennu (110-380v A/C, 0-500v D/C)
- Fjórar stýringar smáspennu (0-24v D/C) sem skilgreina má sem inn- eða útganga, tvístöðu eða stiglaust
- Þrjár forritanlegar ljósdíóður fyrir stöðubirtingu á tækinu sjálfu
- Innbyggður hitamælir með forritanlegum viðvörunar- og viðbragsgildum
- Hægt að bæta við allt að 64 smáspennustýringum og skynjurum fyrir ýmsan búnað
Hugbúnaður :
- Forritanlegar sjálfvirkar tilkynningar um stöðu skynjara eða búnaðar með póstsendingum
- Einfalt og auðlæranlegt viðmót fyrir skeyti og skipanalínu
- Einfalt vefviðmót fyrir uppstillingar
- Skilgreinanlegar tímaáætlanir um stýringar og tilkynningar stöðu
- Stillanleg MAC addressa, IP tala og portnúmer
|