NMEA SæHundur
Stýring tækja í skipum út frá upplýsingum siglingatækja.
Tækið er sérhannað fyrir skip og báta, einangrað frá rafkerfi skipsins og veldur ekki tæringu.
Tækið les og ræður í NMEA upplýsingar frá siglingatækjum á borð við GPS og dýptarmæla. Tækið má stilla á einfaldan hátt til að greina og bregðast við hvaða NMEA streng sem slík tæki gefa frá sér. Viðbrögð tækisins felast í að stjórna öðrum tækjum og búnaði með segulliðum, eða senda út nýjan NMEA streng með upplýsingum frá skynjurum.
NMEA SæGarpurinn getur skynjað stöðu tækja og búnaðar um borð og sent frá sér upplýsingar þar að lútandi, óumbeðið á NMEA formi. Tækið getur einnig túlkað og breytt NMEA strengjum.
Dæmigerð notkun tækisins er útsláttur bógskrúfu, auka stýrisdæla og upphal fellikjöls, út frá upplýsingum frá siglingartækjum, en er einnig notað til ýmissa annarra stýringa og vöktunar.
Eiginleikar vélbúnaðar :
-
Einangraður spennugjafi (galvanized) til notkunar í skipum
-
Allt að sex innbyggðum segulliðum til stýringar á sterkstraumstækjum
-
Átta stýringar, skilgreinanlegar sem skynjarar eða stýringar, tvístöðu (binary) eða stiglaust (analog)
-
Hægt að bæta við allt að 64 segulliðum eða skynjurum/stýringum
-
Þaulprófaður vélbúnaður við erfiðustu aðstæður
-
Al-Íslensk hönnun og framleiðsla
Eiginleikar hugbúnaðar :
-
Stillanleg viðbrögð við gildum hvers kyns NMEA strengs frá siglingatækjum
-
Stillanleg viðbrögð við breytingu á stöðu skynjara, tvístöðu eða stiglausum
-
Forritanleg vörpun gilda NMEA strengja
-
Forritanleg túlkun NMEA strengja
-
Forritanleg útsending NMEA strengja útfrá skynjaðri stöðu og gögnum frá tækjum
Tækið er þegar notað til .. :
-
.. stjórnunar bógskrúfu út frá hraða skips,
-
.. stjórnunar fellikjöls út frá hraða skips og dýptarmæli,
-
.. stjórnunar auka-stýrisdæla út frá hraða skips,
-
.. úsendingar NMEA upplýsinga út frá gögnum frá botngreiningartækjum,
-
.. NMEA síunar,
-
.. NMEA túlkunar .
Forrit til uppsetningar fylgir :

|